Alex Partridge

Ofurkrafturinn ADHD

ADHD doesn't mean broken, it means different and great minds think differently.

— Alex Partridge

Um fyrirlesturinn

Í kennslustofum um allan heim sitja börn með ADHD sem upplifa sig sjálf sem vandamál þegar þau eru í raun óvirkjaður kraftur. Alex Partridge, sem greindist sjálfur á fullorðinsaldri, segir sögu sína af hreinskilni og húmor og sýnir hvernig ADHD birtist í skólastarfi. Hann kennir okkur að þekkja merkin, skilja hvað liggur að baki hegðun sem við misskiljum oft, og breyta nálguninni svo þessi börn fái að blómstra í stað þess að brenna út.

Hver er Alex Partridge

Alex Partridge stofnaði netmiðlana UNILAD og LADBible áður en hann sneri sér að því sem knýr hann enn meira áfram: ADHD.

Alex er stjórnandi hlaðvarpsins ADHD Chatter, sem notið hefur gríðarlegra vinsælda, og er metsöluhöfundur á lista Sunday Times. Sem ein áhrifamesta rödd samtímans um taugafjölbreytileika sameinar hann eigin reynslu og innsýn fremstu sérfræðinga heims. Með opinskárri nálgun sýnir hann milljónum áhorfenda að ADHD-greining sé ekki endastöð, heldur lykill að nýjum skilningi. Skilaboð hans til skólasamfélagsins eru knúin persónulegri reynslu: Að mæta barni með ADHD á réttum forsendum getur breytt lífshlaupi þess til frambúðar.