Allan Kjær Andersen

Umbylting menntunar: Tvíþætt áætlun

If we don't include AI in our pedagogy, AI will take over and destroy education as an instrument for a free and democratic society based on on human values.

— Allan Kjær Andersen

Um fyrirlesturinn

Við lifum á tímum spennu á alþjóðasviðinu, loftslagsbreytinga og stjórnlausrar tækni. Heimurinn sem nemendur erfa krefst nýrra svara. Allan færir rök fyrir tvíþættri leið: annars vegar að þjálfa hæfni 21. aldarinnar með hjálp stafrænnar tækni, og hins vegar að styrkja lýðræðisvitund, gildi og menningararfleifð. Fyrirlesturinn varpar upp hagnýtum dæmum og býður skólafólki að hugsa upp á nýtt hvað á að sitja í hjarta skólastarfsins þegar allt í kringum okkur tekur stakkaskiptum.

Hver er Allan Kjær Andersen

Allan Kjær Andersen hefur varið starfsævi sinni í að móta skóla sem skipta máli. Hann er menntaður í bókmenntafræði og opinberri stjórnsýslu og starfaði lengi sem kennari og stjórnandi í dönskum skólum. Í nærri þrjá áratugi var hann skólameistari í framhaldsskólum, síðast við hinn framsækna Ørestad Gymnasium í Kaupmannahöfn sem vakti heimsathygli fyrir nýstárlegan arkítektúr og stafræna kennsluhætti.
Undanfarin ár hefur Allan starfað á Indlandi, fyrst sem skólameistari Chaman Bhartiya skólans í Bangalore og nú sem ráðgjafi á alþjóðavettvangi. Allan brennur fyrir því hvernig menntun þarf að þróast til að mæta áskorunum nútímans með áherslu á sköpunarkraft, samvinnu og lýðræðisleg gildi sem grundvöll náms.