Bergur Ebbi
Öld ímyndunaraflsins
„Gervigreind sprettur úr hjartanu.”
— Bergur Ebbi
Um fyrirlesturinn
Gervigreindin er ekki bara verkfæri - hún er spegill sem varpar nýju ljósi á það sem við vitum, hvernig við lærum og hvert þekkingin stefnir. Bergur Ebbi fjallar um gervigreind og framtíðina með sérstaka áherslu á menntun og þekkingarkerfi, og beinir sjónum sínum að þeim breyttu tímum sem framundan eru sem hann kallar „Öld ímyndunaraflsins“. Þetta er fyrirlestur sem vekur stórar spurningar um málefni sem íslenskt skólafólk þarf að glíma við á lifandi en um leið ögrandi hátt.
Hver er Bergur Ebbi
Bergur Ebbi Benediktsson er rithöfundur, fyrirlesari og uppistandari með fjölþættan bakgrunn úr heimi lista, viðskipta og fjölmiðla. Í verkum sínum skoðar hann tæknisöguna og áhrif hennar á tísku, tíðaranda og sjálfsmynd einstaklinga og hópa og dregur fram samhengi sem fáir aðrir sjá milli tækniframfara og daglegs lífs. Með forvitni, húmor og fræðilegri dýpt fer hann þvert á svið sem sjaldan tala saman og nær eyrum jafnt fræðafólks og almennings.
Spurningar og svör frá Sli.Do
Hvaða áhrif heldurðu að gervigreind muni hafa á samskipti og félagsfærni barna?
Þessi spurning er svo stór að við þurfum að horfa mjög vítt yfir sviðið. Ef við tækjum nútíma manneskju og settum hana inn í fortíðina væri hún örugglega ekki á á sama félagslega tíðnisviði og fólkið í kringum hana. Hún gæti kannski aðlagast, en segja má að það sem þykir félagsfærni í dag, er ekki endilega það sama og það var áður. Þetta virkar svo að sjálfsögðu í báðar áttir. Dæmi. Það að vera ekki brugðið yfir stöðugu áreiti, gæti talist einn angi félagsfærni. Ef maður tæki mann frá 197o og setti hann inn í nútíðina væri hann örugglega í töluverðu uppnámi yfir ýmsu áreiti og þætti kannski skrítinn og ekki á sömu félagslegu bylgjulengd og við hin. Það er því ekki alveg sanngjarnt að hugsa samskipti og félagsfærni bara á gott-vont-skala. Erfiðleikarnir eru fyrst og fremst þegar við göngum ekki í takt sem samfélag. Gervigreind er til dæmis vís til að auka á einmanaleika, allavega eins og við skilgreinum hann í dag. Gervigreindargáttir geta komið í staðinn fyrir vini og jafnvel maka, en samt vitum við að með sinni smjaðurslegu aðferðarfræði, eru þær ekki vinurinn sem til vamms segir, auk þess sem þær gefa hvorki frá sér hlýju né snertingu. Samt verðum við líka að taka með í reikninginn að það að geta lifað í kringum slíka tækni verður hluti af félagsfærni framtíðar hvort sem okkur líkar betur eða verr. Svarið er því að áhrifin verða mikil, en það er ekki alveg sanngjarnt að áætla að áhrifin séu endilega eingöngu slæm. Í bók minni, Öld ímyndunaraflsins, færi ég til dæmis rök fyrir því að gervigreind búi hugsanlega yfir möguleikum fyrir okkur til að skilja okkur sjálf betur og hvernig við hugsum - og lykillinn að félagsfærni felst oft fyrst og fremst í því að þekkja og skilja sjálfan sig.
Er gervigreindin að gera okkur fagurfræðilega einsleitari? Hvað gerist þegar vélar geta búið til endalaust magn af "fallegu" efni?
Þetta er frábær spurning því hún snertir á því sem mér þykir mikilvægast þegar kemur að samskiptum við tæknina, sem er fagurfræðin. Við höfum nú þegar séð þau áhrif sem er lýst í spurningunni með tilkomu samfélagsmiðla. Miðill eins og Pinterest, sem að vísu framleiðir ekki efni á sama hátt og spunagreind, heldur raðar niður myndum og stílum með hjálp reiknirita, nær líka að skapa þetta offramboð af “fallegu efni”, sem virðist ágætt upp að ákveðnu marki. Það er nefnilega eins og reiknirit, og nú gervigreind, séu fær um grunn-vinnuna við fagurfræðilega framsetningu. Hluti fagurfræðinnar er nefnilega útreiknanlegur. Það er hægt að vita nokkurn veginn hvað fellur í kramið á ákveðnum tíma, sér í lagi þegar fyrri óskir og smekkur er skrásettur. En svo er það sá hluti sem er óvæntur. Þó það sé hægt að reikna út nokkurn veginn hvað okkur líkar, til dæmis í myndum og texta, þá er erfiðara að reikna út nákvæmlega hvað fær okkur til að heillast. En þá má spyrja sig hvort þessi þróun, þar sem verður offramboð á 97% fallegu efni, auki ekki bara enn frekar í hungrið að sjá eitthvað sem er svo fallegt að enginn kvarði getur náð yfir það. Svo ég svari því spurningunni eins og hún er orðuð, þá er ég er ekki viss um að þó að umhverfi okkar verði fagurfræðilega einsleitara, þá muni það gera okkur fagurfræðilega einsleitari. Ef eitthvað er, þá verðum við bara enn sólgnari í fegurðina í öllum sínum fjölbreytileika og sú ásókn mun ávallt finna einhvern farveg.
Hvernig þroskum við sköpunargáfu nemenda og ímyndunarafl þeirra í vinnu með gervigreind?
Það er margt við gervigreind sem er kannski bælandi. Gervigreind er meira fókuseruð á útkomu frekar en ferlið í átt að útkomunni, sem er synd, því það er í ferlinu sem hin skapandi vinna fer fram. En til að segja eitthvað jákvætt um gervigreind í tengslum við sköpun þá má beina athyglina að því að það sem við köllum “generative AI” eða “skapandi gervigreind” er nákvæmlega það: skapandi. Það lýsir sér ekki síst í því að það er engin ákveðin niðurstaða í svörum hennar. Það er til dæmis áhugavert að láta helstu spunagreindarforritin teikna mynd fyrir sig eftir ákveðnum leiðbeiningum. Þegar sömu leiðbeiningar eru endurteknar er ekki víst að myndin sem hún geri í annað sinn sé nákvæmlega sú sama og hin fyrsta. Þetta gengur gegn svo mörgum grundvallarreglum sem við eigum að venjast í iðnvæðingu og tækni þar sem endurtekning og fjölföldun er ávallt lykilatriðið. Gervigreind er að þessu leyti kannski meira eins og skapandi mannshugur, sem er ekki endilega mjög gjarn á að endurtaka sig. Þetta er spennandi og ég held að þegar athyglin beinist að þessum þáttum, frekar en möguleikum gervigreindar að skrifa heimildaritgerðir (sem hún gerir einmitt mjög oft villur í), þá muni ýmislegt spennandi koma í ljós.
Hvernig getum við unnið gegn þessum hraða skynveikleika í daglegu lífi án þess að aftengjast hraðanum í samfélaginu?
Það mætti færa rök fyrir því að hlutverk skóla, sama á hvaða skólastig við lítum, sé að einhverju leyti að aftengjast ýmsum praktískum þáttum í samfélaginu. Vissulega hefur menntakerfið það hlutverk að gera fólk reiðubúið undir til dæmis atvinnulíf og ýmsar aðrar kröfur samfélagsins, en undirbúningurinn felst ekki síst í því að gefa nemendum ráðrými til að sjá og skynja að það fer ekki allt fram á ógnarhraða. Við getum lært svo mikið af fornum helgisögnum til dæmis. Ekkert endilega trúarlegum sögnum, heldur bara hvers konar gömlum sögnum, úr ýmsum menningarheimum. Við erum alltaf að sjá sömu sögurnar endurtaka sig.
Hvernig getum við kennt nemendum að nýta gervigreindina en um leið að bera virðingu fyrir höfundarétti listafólks?
Hugsanlega er það ósanngjarnt að leggja þá ábyrgð á nemendur að gæta að höfundarétti þegar kemur að notkun gervigreindar þegar ábyrgðin ætti miklu fremur að hvíla á fyrirtækjunum sem þróa gervigreindina. Það liggur fyrir að þau hafa nú þegar nýtt sér mannanna hugverk sem kennsluefni fyrir spunagreindina. Eflaust munu risastór dómsmál falla þegar fram líða stundir þar sem hugverkahöfum verða dæmdar bætur. Reyndar eru slík málaferli nú þegar hafin og einhverjir dómar hafa fallið en á meðan réttaróvissan stendur yfir er eðlilegt að gera öllum notendum gervigreindar, þar með talið skólakrökkum, það ljóst að spuni gervigreindarinnar hefði aldrei litið dagsins ljós ef ekki væri fyrir sköpunarverk fólks. Yfir það heila þarf að breyta viðhorfi fólks til gervigreindar og minna á að bæði hún og afurðir hennar eru sköpunarverk sem rekja má til hugverka mannsins, en ekki bara tækni sem féll af himnum ofan.