Bo Hejlskov Elvén
Hegðun, hugarfar og herfileg mistök: Listin að velja réttu nálgunina
“Nobody does wrong on purpose”
— Socrates
Um fyrirlesturinn
Í fyrirlestri sínum styðst Bo við eigin rannsóknir og sýnir hvernig grunnviðhorf starfsfólks til nemenda móta ómeðvitað nálgun þeirra á hegðunarvanda og afhjúpar hversu auðvelt er að grípa í röngu verkfærin. Fyrirlesturinn er rannsóknardrifinn, hugsunavekjandi og allt að því óþægileg speglun fyrir kennara en býður um leið upp á annað og betra hugarfar í vinnu með krefjandi hegðun.
Hver er Bo Hejlskov Elvén
Bo Hejlskov Elvén er danskur sálfræðingur og rithöfundur sem sérhæfir sig í krefjandi hegðun barna og ungmenna. Hann hefur starfað í áratugi með skólum, meðferðarheimilum og öðrum stofnunum í Danmörku og Svíþjóð og er einn þekktasti sérfræðingur Norðurlanda á sínu sviði. Bo hefur skrifað fjölda bóka um sjálfsstjórn, öryggi og hegðun barna og hefur þjálfað þúsundir starfsmanna í nálgun sem byggir á virðingu, ró og vísindalegri þekkingu á taugakerfinu.