Danny Steele

Breytingin byrjar hjá mér

“While there is much that is out of our control, there is much we can control. Every single day we control the energy we bring into our school, and every single day we control the passion we have to making a difference for our students and our colleagues.”

— Danny Steele

Um fyrirlesturinn

Kennarar hafa ótrúlegan kraft til að umbylta kennslustofum og heilum skólum. En það byrjar allt með því að þekkja sjálfan sig. Danny Steele sýnir hvernig þú getur komið auga á drifkrafta þína og styrkleika og hvernig þú getur. nýtt þátil að hafa raunveruleg áhrif á líf nemenda. Skilaboðin eru einföld en beitt: breytingin í skólanum byrjar ekki með nýrri stefnu, nýjum forritum eða nýju stjórnendateymi. Hún byrjar með manneskjunni í skólastofunni.

Hver er Danny Steele

Danny Steele hefur helgað yfir 30 ár af starfsævi sinni menntamálum — sem kennari, þjálfari, aðstoðarskólastjóri, skólastjóri og dósent í forystu. Hann hefur tvisvar verið heiðraður í Alabama: sem aðstoðarskólastjóri ársins 2005 og framhaldsskólastjóri ársins 2016. Danny er höfundur sex bóka, þar af tveggja með Todd Whitaker, og er eftirsóttur fyrirlesari á landsvísu í Bandaríkjunum. Hann er með meistaragráðu í sögu frá University of Alabama at Birmingham og doktorsgráðu í menntunarforystu frá Samford University. Danny býr í Birmingham ásamt eiginkonu sinni og er stoltur faðir þriggja uppkominna barna.