Emily Meadows

Stöndum vaktina: Hinsegin nemendur í skólum

"We know schools can really make a difference for LGBTQ+ children."

— Emily Meadows

Um fyrirlesturinn

Það er vaxandi þrýstingur á kennara um allan heim að halda sig til hlés, þegja og jafnvel útiloka hinsegin nemendur. Meira að segja Ísland, sem hefur náð lengra en mörg lönd í réttindabaráttu hinsegin fólks, er ekki undanskilið þessu alþjóðlega bakslagi. Emily Meadows byggir á nýjustu rannsóknum og skoðar hvaðan þrýstingurinn kemur, hvernig hann birtist og hvers vegna skólar eru einmitt höfuðvígi þessarar baráttu. Fyrirlesturinn er í senn áskorun og hvatning: að standa vaktina með skýra sýn og kjark þar sem nemendurnir eru settir í fyrsta sæti.

Hver er Emily Meadows

Dr. Emily Meadows er sérfræðingur í inngildingu hinsegin nemenda í alþjóðaskólum og ráðgjafi hjá Council of International Schools og International Schools Services. Hún er með doktorsgráðu og meistaragráður í kynheilbrigði og ráðgjöf, hefur starfað sem skólaráðgjafi í yfir áratug og kennir nú við State University of New York. Emily hefur mótað viðmið, stefnur og þjálfun fyrir fjölda alþjóðlegra menntasamtaka, þar á meðal NEASC, ISCA og American Psychological Association. Hún hefur eytt mestum hluta ævi sinnar í alþjóðaskólum og brennur fyrir því að skapa skólamenningu sem hlúir að öryggi, jafnrétti og plássi fyrir alla nemendur.