Kate Robinson

Út fyrir rammann: Máttur sköpunar í menntun

Um fyrirlesturinn

Kate Robinson fjallar um sköpun sem grundvallarhæfileika sem er enn að stórum hluta misskilinn í skólastarfi. Hún byggir erindi sitt á farsælu samstarfi við föður sinn, Sir Ken Robinson, og nýjustu bók sinni, 25 ára afmælisútgáfu Out of Our Minds: The Power of Being Creative.

Kate dregur fram kjarnann í arfleifð þeirra feðgina: mikilvægi þess að rækta hæfileika hvers einstaklings, endurhugsa hefðbundnar skilgreiningar á greind og skapa umhverfi þar sem sköpunarkrafturinn fær að blómstra. Með hagnýtum dæmum og ferskum sjónarhornum rökstyður hún af hvers vegna sköpun á að vera kjarninn í öllu námi en ekki valfrjáls viðbót.

Hver er Kate Robinson

Kate Robinson er framkvæmdastjóri Sir Ken Robinson Foundation og vörslumaður hugverka föður síns, Sir Ken Robinson. Hún er meðhöfundur tveggja bóka ásamt honum: Imagine If… Creating a Future for Us All, sem er pólitísk og menntunarfélagsleg stefnuyfirlýsing hans, og 25 ára afmælisútgáfu metsölubókarinnar Out of Our Minds: The Power of Being Creative sem kemur út árið 2026.

Kate starfar sem höfundur, fyrirlesari og ráðgjafi á mótum sköpunar, menntunar og menningarbreytinga. Hún er m.a. sérfræðingur í barnaþáttunum Not a Box á Apple TV+ og verndari samtakanna Action for Children’s Arts og Forest of Imagination. Kate er ástríðufullur talsmaður þess að ímyndunarafl sé ekki lúxus, heldur grundvallarfærni og lífsnauðsyn fyrir framtíð mannkyns.