Lisa Eriksson
Endurhugsað námsmat á gervigreindaröld
Um fyrirlesturinn
Gervigreind breytir ekki bara vinnulagi nemenda – hún gjörbreytir forsendum námsmats. Þegar tæknin getur skrifað, dregið saman og rökrætt, stöndum við frammi fyrir áleitni spurningu: Hvað erum við í raun að meta?
Lisa Eriksson sýnir hvernig námsmat þarf að færast frá lokaafurð yfir í námsferli, frá eftirliti til faglegrar nærveru og frá fáguðum texta til raunverulegs skilnings. Í erindinu er fjallað um hvernig má hanna verkefni þar sem gervigreind nýtist sem námstæki frekar en styttri leið, og hvernig við tryggjum að það sé hugsun nemandans sem er metin. Námsmat á tímum gervigreindar snýst ekki um aukið eftirlit, heldur markvissari og meðvitaðri kennslu þar sem námið er gert sýnilegt í rauntíma.
Hver er Lisa Eriksson?
Lisa Eriksson stýrir Makerzone í Sollentuna í Svíþjóð þar sem hún starfar á mótum kennslufræði, stafrænnar umbreytingar og skólaþróunar. Hún er kennari og kennsluráðgjafi og leiðir stefnumótandi verkefni sem efla stafræna hæfni, nýsköpun og STEAM-menntun. Lisa leggur áherslu á að hanna merkingarbært námsumhverfi þar sem tækni er ekki bara viðbót við nám heldur grunnverkfæri til að dýpka skilning, sköpun og gagnrýna hugsun. Lisa hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, þar á meðal kennaraverðlaun Sollentuna (2019) og sænsku heimildarýnisverðlaun, Det Gyllene Förstoringsglaset (2025), fyrir framlag sitt til gervigreindarlæsis. Lisa er eftirsóttur fyrirlesari sem hjálpar skólum og sveitarfélögum að brúa bilið á milli opinberrar stefnumótunar og daglegrar starfa í skólastofunni.