Med Kharbach

Gagnrýnið gervigreindarlæsi:
Kennum nemendum að hugsa, ekki bara að gefa fyrirmæli..

“The most important AI skill we can teach students isn't how to write a better prompt. It's knowing when the answer they got back isn't good enough.”

— Dr. Med Kharbach

Um fyrirlesturinn

Nemendur eru löngu byrjaðir að nota gervigreind en margir treysta henni gagnrýnislaust. Gagnrýnið gervigreindarlæsi snýst um miklu meira en tæknilega leikni; það snýst um að temja sér hugarfar sem gerir nemendur færa um að draga svör gervigreindar í efa, greina hlutdrægni og skilja hvernig þessi verkfæri vinna með tungumálið. Mikilvægast er þó að nemendur viti hvenær á að leggja tæknina til hliðar. Í þessu erindi sýnir Med Kharbach hvers vegna gagnrýnin hugsun er dýrmætasta „gervigreindarfærnin“ sem við getum kennt nemendum okkar og hvernig við innleiðum hana í skólastarf.

Gögn úr fyrirlestrinum

Hver er Med Kharbach?

Dr. Med Kharbach er rannsakandi, kennari og höfundur bókarinnar Teaching with AI. Hann býr yfir víðtækri reynslu úr skólastarfi, bæði sem fyrrverandi grunn- og framhaldsskólakennari, og kennir nú við Mount Saint Vincent University í Halifax í Kanada. Í gegnum vef sinn, EducatorsTechnology.com, og aðra miðla miðlar Med þekkingu sinni til hundruða þúsunda kennara um allan heim. Hann er þekktur fyrir hagnýtar greiningar á því hvernig gervigreind og stafræn tækni geta raunverulega bætt kennslu og nám. Med er ein skýrasta röddin á sviði gervigreindarlæsis í menntun, fræðimaður sem greinir tækifæri og áskoranir af yfirvegun og setur flókna tækni fram á mannamáli sem nýtist í daglegu skólastarfi.