Sævar Helgi Bragason

Að tendra áhuga á vísindum

Um fyrirlesturinn

Hvernig kveikir maður neistann? Hvernig skapar maður áhugann sem breytir forvitni í ástríðu og ástríðu í nám? Sævar Helgi Bragason, einn ástsælasti vísindamiðlari landsins, deilir reynslu sinni af því að vekja áhuga barna og ungmenna á vísindum. Hann sýnir hvernig vísindamiðlun og vísindalæsi geta orðið hjartað í skólastarfi og hvernig kennarar geta nýtt sér aðferðir og efni sem fanga athyglina og ná árangri. Fyrirlestur Sævars minnir okkur á að vísindi eru ekki torskilið námsefni heldur ævintýri sem öll börn eiga að fá að upplifa.

Hver er Sævar Helgi Bragason?

Sævar Helgi Bragason, gjarnan kallaður Stjörnu-Sævar, er einn ástsælasti vísindamiðlari landsins. Hann er jarðfræðingur að mennt hefur helgað líf sitt því því að vekja forvitni og áhuga almennings, og ekki síst yngri kynslóða, á undrum alheimsins, náttúru og vísindum.
Sævar hefur stýrt þáttum um náttúru og vísindi á RÚV, hann heldur úti Stjörnufræðivefnum og er afkastamikill rithöfundur með fjölda bóka á ferilskránni, þar á meðal Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna og geysivinsæla bókaröð fyrir börn um vísindalæsi. Sævar hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, þar á meðal frá Háskóla Íslands og Rannís, og var valinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2014. Með eldmóði sínum og skýrri miðlun hvetur Sævar okkur öll til að líta oftar til stjarnanna og hugsa vel um jörðina okkar.

Spurningar og svör frá Sli.Do

Hvernig náum við að efla aðra með okkur í náttúruvísindakennslu út fyrir námsbækur? Hvernig gerum við vísindakennslu/nám jákvætt fyrir alla?

Ég held að það vanti yfir höfuð meira af kennslu utandyra, þar sem nemendur fá að gera tilraunir, prófa, mistakast og kynnast náttúrunni sjálffri. Við eigum að fara með krakkana út að skoða stjörnuhiminn, sjá Satúrnus og tunglið og Júpíter í gegnum sjónauka. Að þau sjái að það sem þau læra um er ekki bara í kennslubókum heldur raunveruleg og óviðjafnanleg fegurð. Nýta náttúruviðburði sem kveikja áhuga, t.d. sól- og tunglmyrkva., 

Hvaða eina tilraun eða dæmi hefur reynst þér langbest til að fá fólk til að sperra eyrun?

Þegar ég sýni fólki í hvaða stjörnumerki þau eru raunverulega. Jörðin er eins og risavaxin skopparakringla sem vaggar og veltur yfir mörg þúsund ár. Á þeim tíma hliðrast staðsetning sólar á himni miðað við einhverja tilteknar dagsetningu. Þannig eru flestir sem telja sig hrúta alls ekki raunverulega hrútar heldur fiskar, o.s.frv. Flestir hafa færst í stjörnumerkið á undan. Flestum finnst þetta stórmerkilegt og leggja vel við hlustir og áhugi kviknar. Þá opnast dyr til að fræðasta um snúning Jarðarr, árstíðir og auðvitað vísindi eða gervivísindi. 

Væri hægt að búa til “banka” með tilraunum fyrir miðstig og unglingastig?

Ég held að slíkur banki sé til, til dæmis hér https://kennarakvikan.is/Fors%C3%AD%C3%B0a

Hvernig hjálpum við kennurum, sem telja sig ekki vera raungreinatýpur, að fyllast öryggi til að kenna og framkvæma tilraunir?

Það eina sem mér dettur helst í hug eru hands-on námskeið fyrir kennara. Hvort sem það tengist líffræði, efnafræði, eðlisfræði, jarðfræði eða stjörnufræði, þá eykur fátt sjálfstraust en að læra með höndunum og gera sjálf(ur). Mér finnst líka mikilvægt að kennarar geti fengið að fylgjast með öðrum kennurum að störfum og framkvæma tilraunir. 

Samfélagsmiðlar keppa um athygli ungs fólks í dag — hvernig getum við gert vísindi eins grípandi og stuttmyndbönd á TikTok eða YouTube?“

Ég held að það verði ekki gert nema með stuðningi stjórnvalda og/eða einkaaðila. Að útbúa fræðsluvídeó sem þessi á íslensku er tímafrekt og mikil vinna ef vel á að gera þau. Málsvæðið okkar er agnarsmátt svo íslenskir kennarar eða miðlarar geta tæpast fengið laun fyrir vinnuna sína þegar svo fáir horfa á vídeóin. Vídeó sem þessi á íslensku eru alveg klárlega leið til að fanga athyglina á jákvæðan hátt en kalla því miður í dag á ástríðufullt fólk sem er til í að gefa vinnuna sína.