Sherri Spelic
Margt býr í leiknum: Lærdómur fyrir alla kennara úr íþróttakennslu
“"In a game, it may seem like it’s about passing the ball or defending the goal or hitting the target, yes AND it’s also about who I choose to be in the game: How do my decisions reflect my sense of integrity and fairness towards myself and others?"
— Sherri Spelic
Um fyrirlesturinn
Hvers konar nám fer fram hjá nemendum í jákvæðri íþróttakennslu? Þótt það líti út eins og hreinir leikir og skemmtun er íþróttasalurinn lifandi félagsleg rannsóknarstofa þar sem jafningjanám, hreyfifærni og hópefli flæðir saman á hverri mínútu. Sherri Spelic er reyndur íþróttakennari og sýnir okkur hvernig lærdómur úr íþróttakennslu gagnast kennurum allra námsgreina og aldurshópa og minnir okkur á að það býr miklu meira í leiknum en virðist vera við fyrst sýn.
Hver er Sherri Spelic?
Sherri Spelic er kennari, leiðtogaþjálfi, bloggari og útgefandi sem fluttist til Vínar frá Bandaríkjunum fyrir um 30 árum. Hún er höfundur bókarinnar Care at the Core: Conversational Essays on Identity, Education and Power og ritstýrir vefritinu Identity, Education and Power. Í skrifum sínum sameinar hún hugleiðingar um nám og kennslu, kennarastarfið, tengsl og hreyfingu í víðum skilningi.