Skráðu þig á Utís Online 2026

Utís Online er menntaviðburður á netinu fyrir kennara, stjórnendur og starfsmenn á öllum skólastigum, 18-19.september 2026 frá 13-16 á föstudegi og 10-15 á laugardegi.


Utís Online hentar öllum kennurum og skólafólki, hvar sem er á landinu, sama á hvaða skólastigi, sem hafa áhuga á skólaþróun og nýsköpun, upplýsingatækni, læsi í víðum skilningi, námsmati með nýjum augum, nemendamiðuðu námi, farsæld nemenda svo eitthvað sé nefnt!

Verð á mann er kr. 19.990.- og innifalið eru allir fyrirlestrar og aðgangur að öllu efni, þátttökupakki m.a. með ígrundunarbók sendur til hvers þátttakenda, aðgangur að spjalli, tengslaneti og öðru óvæntu og skemmtilegu.

Við skráningu stofnast krafa í heimabanka með eindaga 1. október 2026

Þegar krafan hefur verið greidd berst tölvupóstur með greiðslukvittun sem hægt er að nota til að sækja um endurgreiðslu til stéttarfélags.

Þú getur farið á utis.online/dagskra og sótt dagskrá til að senda með umsókninni.


Átt þú ekki styrk til endurmenntunar? Skráðu þig eins og aðrir og sendu svo póst á Bjössa bjossi(at)utis.online og við finnum út úr því saman.

ATH. Ekki er hægt að afskrá sig af ráðstefnunni með minna en 10 daga fyrirvara (10.sept) vegna þess að ígrundunarbækur hafa þá verið sendar og gert ráð fyrir þátttakanda.

Ef þú getur ekki horft á rástefnuna í rauntíma þá er það í góðu lagi því allt efnið er þátttakendum aðgengilegt í 1 ár eftir ráðstefnu (upplýsingar um það verða í ígrundunarbókinni sem verður send til þín).