Takk fyrir skráninguna!
Við hlökkum til að vera með þér á Utís Online 2026 18. og 19. september. Meðan þú telur niður dagana geturðu kynnt þér fyrirlesarana hérna á vefnum, fylgt okkur á samfélagsmiðlum og látið þig hlakka til.
Þátttökupartý
Á Utís Online 2024 héldu yfir 150 skólar og vinnustaðir þátttökupartý meðan ráðstefnan fór fram. Þannig verður netráðstefna að sameiginlegri endurmenntun og samveru vinnustaðarins og á mörgum stöðum er mikil gleði og húllumhæ alla helgina. Utís styrkir þátttökupartýi um 1500 kr. fyrir hvern þátttakanda í partýinu til að kaupa veitingar.
Þú getur kannað hvort þinn skóli sé búinn að skrá sig og lesið meira um þátttökupartý hér.
Þú getur líka smellt á hnappinn hér fyrir neðan til að skrá þátttökupartý í þínum skóla.
Leiðbeiningar um endurgreiðslu
Við skráningu birtist reikningur upp á 19990 kr. í heimabankanum þínum. Daginn eftir að þú greiðir reikninginn færðu senda greiðslukvittun í tölvupósti frá Konto sem þú getur notað til að sækja um endurgreiðslu til þíns stéttarfélags.
Flest stéttarfélög óska eftir afriti af dagskrá með umsókninni en þú getur sótt það með því að smella á hnappinn hér að neðan.