Þórey Sigþórsdóttir
Röddin - þarfasti þjónninn
„Stærsta raddverndin og besta er raddþjálfun.”
— Þórey Sigþórsdóttir
Um fyrirlesturinn
Röddin er eitt mikilvægasta verkfæri kennarans og jafnframt það sem gleymist oftast þangað til hún bregst. Í þessum hagnýta fyrirlestri sýnir Þórey Sigþórsdóttir hvernig kennarar geta þjálfað röddina sína og notað hana til að auka áhrif sín í kennslustofunni. En líka hvernig við getum haldið stjórn í skólastofunni án þess að setja álag á röddina. Fyrirlestur Þóreyjar er fullur af hagnýtum verkfærum sem nýtast öllum kennurum á hverjum degi.
Hver er Þórey Sigþórsdóttir?
Þórey Sigþórsdóttir er leikkona og einn helsti raddþjálfi landsins. Hún lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands og meistaranámi í þróuðum leikhúsaðferðum frá Central School of Speech and Drama í Lundúnum. Þórey hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi, en hún er jafnframt brautryðjandi í þjálfun raddar og framkomu fyrir fólk í atvinnulífi og fjölmiðlum. Þórey hefur starfað sem kennari í leiklist og raddbeitingu á öllum skólastigum ásamt því að halda námskeið í raddbeitingu og fyrirlestrartækni fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana. Með áherslu á kraftmikið tjáningarform og örugga framkomu hjálpar hún fólki að finna sína eigin rödd.
Spurningar og svör frá Sli.Do
Hvaða eina raddæfingu ættu allir kennarar að gera áður en kennsla hefst?
Ég mæli með því að standa vel í fæturna, teygja hendur yfir höfuð, anda djúpt inn í leiðinni (augun út og rætur í fætur) og puðra svo á útöndun um leið og þú lætur hendurnar síga niður til hliðanna. Hér ertu að tengja öndun, fókus út, liðka talfærin og styrkja jarðtengingu í gegnum fætur.
Eru til sérstök námskeið fyrir kennara í raddþjalfun? Er svo er, hvar?
Ég hef haldið námskeið sem hafa gagnast mörgum kennurum, það næsta verður haldið í nóvember 2026: https://programs.thoreysigthorsdottir.com/raektadu-roddina
Ég hef líka komið á staðinn ef óskað er eftir, út á land eða í skóla á höfuðborgarborgarsvæðinu og boðið upp á þetta námskeið. Jafnvel snérsniðin námskeið sem fara inn á ákveðn málefni eins og lestur/kennslu í upplestri t.d.
LHÍ hefur stundum boðið upp á námskeið sömuleiðis í endurmenntun.
Hvernig talar maður hátt án þess að "þrýsta" á röddina og getur það breyst með aldrinum hvaða aðferð virkar?
Þú vinnur með líkamsstuðning raddarinnar. Sækir kraftinn niður í stuðning í gegnum djúpöndun (þindaröndun) og gætir þess að hafa rétt spennujafnvægi. Nota ekki spennu í hálssvæðinu til að styrkja heldur styður með vöðvum i kringum þindina. Það sem breytist með aldrinum er oft að við þurfum að setja meiri athygli á að styðja við líkamstengingu raddarinnar, rækta hana.
Þjálfa öndunina, með aldrinum kemur það síður af sjálfu sér en með þjálfun ættu allir að geta haft þróttmikla rödd þrátt fyrir aldurinn.
Hvaða æfingar myndir þú ráðleggja kennurum að gera á hverjum degi eða regluglega til að þjálfa og styrkja röddina?
Öndunaræfingar og liðkunaræfingar fyrir talfærin.
Hver er þín skoðun á gera hljóðnema og hátalara að staðalbúnaði í “venjulegri” kennslustofu?
Að mínu mati væri réttara að þjálfa raddir kennara og hlúa að þeim frekar en að treysta eingöngu á magnara eða hljóðnema, án þess að það hafi átt sér stað. Það eru leiðir til að læra á það að nota rýmið, taka athygli hópsins eftir öðrum leiðum. Nota síðan hljóðnema í þeim tilfellum sem það er nauðsynlegt. Ég sat í æfingakennslunni,á sínum tíma, inni í tíma þar sem kennari var með hljóðnema og mér fannst sú upplifun skrítin. Það að heyra í kennara í gegnum hátalara skapar ákveðna fjarlægð. En auðvitað gæti það verið nauðsynlegt hjálpartæki við ákveðnar aðstæður.
Svo stutta svarið, bæði er best en ég hallast síður að þvi að nota hljóðnema eða hátalara.
Ég veit að það er ekki verið að þjálfa raddir kennara markvisst eins og staðan er í dag.
Draumastaðan væri kennarar með vel þjálfaðar raddir og þann möguleika að nota hljóðnema þar sem það á við en ekki til að treysta á dags daglega.