Tom Sherrington
Skólastofur fyrir alla: Eru allir nemendur að læra?
“You can't claim to believe in inclusion unless you teach so that every student succeeds.”
— Skólastofur fyrir alla: Eru allir nemendur að læra?
Um fyrirlesturinn
Að kenna öllum nemendum samtímis er flókið og krefjandi en fullkomlega raunhæft. Tom Sherrington leiðir okkur í gegnum aðferðir sem tryggja að hver einasti nemandi sé virkur, hugsi og skapi merkingu. Ef þau eru ekki að því, þá eru þau ekki heldur að læra. Fyrirlesturinn er hagnýtur fróðleikur fyrir kennara sem vilja ekki sætta sig við að nokkur nemandi heltist úr lestinni, óháð getu, bakgrunni eða áskorunum.
Hver er Tom Sherrington?
Tom Sherrington er einn áhrifamesti sérfræðingur Breta í þróun kennsluhátta. Hann er einn stofnenda Teaching WalkThrus og höfundur bóka á borð við The Learning Rainforest og metsölubókarinnar Rosenshine's Principles in Action. Nýjasta verk hans, Teaching WalkThrus-ritröðin sem hann samdi með Oliver Caviglioli, hefur náð til kennara í yfir 50 löndum. Með 30 ára reynslu að baki sem kennari og skólastjóri miðlar Tom þekkingu sinni á bloggsíðunni teacherhead.com, sem er daglegur viðkomustaður þúsunda kennara um allan heim. Tom ferðast um heiminn með skýr og vísindalega studd skilaboð um áhrifaríka kennsluhætti. Markmið hans er einfalt en metnaðarfullt: að vandaðar kennsluaðferðir nái til hvers einasta nemanda, í hverri einustu kennslustofu.