Bergur Ebbi Benediktsson
Öld ímyndunaraflsins
Hver er Bergur Ebbi Benediktsson?
Bergur Ebbi Benediktsson er rithöfundur, fyrirlesari og uppistandari með fjölþættan bakgrunn úr heimi lista, viðskipta og fjölmiðla. Í verkum sínum skoðar hann tæknisöguna og áhrif hennar á tísku, tíðaranda og sjálfsmynd einstaklinga og hópa og dregur fram samhengi sem fáir aðrir sjá milli tækniframfara og daglegs lífs. Með forvitni, húmor og fræðilegri dýpt fer hann þvert á svið sem sjaldan tala saman og nær eyrum jafnt fræðafólks og almennings. Bergur Ebbi leggur sig fram um að bjóða fólki að hugsa upp á nýtt um þann heim sem við höfum mótað og um leið þann sem er nú óðum að móta okkur.
Um fyrirlesturinn
Gervigreindin er ekki bara verkfæri - hún er spegill sem varpar nýrri birtu á það hvað við vitum, hvernig við lærum og hvert þekkingin fer næst. Bergur Ebbi fjallar um gervigreind og framtíðina með sérstaka áherslu á menntun og þekkingarkerfi, og beinir sjónum sínum að öld ímyndunaraflsins sem framundan er. Fyrirlestur sem lyftir upp stóru spurningunum sem íslenskt skólafólk þarf að glíma við — á lifandi, hugsunavekjandi og aðgengilegu máli.