Hvað er Utís Online?
Utís Online er menntaviðburður á neti fyrir kennara, stjórnendur og starfsfólk á öllum skólastigum. Ráðstefnan verður haldin 18.-19. september 2026 frá kl. 13-16 á föstudegi og kl. 10-15 á laugardegi.
Þar verða:
20 heimsklassa fyrirlestrar, allir textaðir á íslensku 🇮🇸
Á annan tug innslaga í dagskrárlið sem heitir 'Ferðalag um íslenskt skólakerfi’
Allir þátttakendur fá þátttökupakka með ígrundunarbók og fleira góðgæti 💌
Þátttökupartý í skólum og vinnustöðum um land allt og margt fleira! 🎉
Tækifæri að ræða við kollega um land allt, taka spjall og læra áfram saman.
Formleg dagskrá fer fram:
Föstudaginn 18.september kl. 13-16
Laugardaginn 19.september kl. 10-15