Allan Kjær Andersen
Umbylting menntunar: Tvíþætt áætlun
Hver er Allan Kjær Andersen?
Allan Kjær Andersen hefur varið starfsævi sinni í að móta skóla sem skipta máli. Hann nam danska bókmenntafræði og opinbera stjórnsýslu og starfaði fyrst sem kennari og stjórnandi í dönskum iðnskólum. Í nærri þrjá áratugi var hann skólameistari danskra framhaldsskóla, síðast við Ørestad Gymnasium í Kaupmannahöfn sem hlaut alþjóðlega athygli fyrir nýsköpun. Síðan hefur hann starfað á Indlandi, fyrst sem skólameistari Chaman Bhartiya School í Bangalore og nú sem ráðgjafi. Allan brennur fyrir því hvernig menntun þarf að þróast til að mæta áskorunum 21. aldarinnar — án þess að missa sjónar á lýðræðislegum gildum.
Um fyrirlesturinn
Við lifum á tímum spennu á alþjóðasviðinu, loftslagsbreytinga og stjórnlausrar tækni. Heimurinn sem nemendur erfa krefst nýrra svara. Allan færir rök fyrir tvíþættri leið: annars vegar að þjálfa hæfni 21. aldarinnar með hjálp stafrænnar tækni, og hins vegar að styrkja lýðræðisvitund, gildi og menningararfleifð. Fyrirlesturinn varpar upp hagnýtum dæmum og býður skólafólki að hugsa upp á nýtt hvað á að sitja í hjarta skólastarfsins þegar allt í kringum okkur tekur stakkaskiptum.