Ally Zlatar
Listin sem hreyfiafl: Verkfæri til að efla raddir nemenda
Hver er Ally Zlatar?
Dr. Ally Zlatar er listakona, fræðimaður og aðgerðasinni. Hún stofnaði The Starving Artist, sem er aðgerðamiðað verkefni sem snýst um að nýta skapandi raddir til kerfisbreytinga. Hún heldur einni úti The Starving Artist Publishing Studio, sem gefur rithöfundum úr jaðarhópum vettvang og stofnaði sjálfseignarsjóð sem hefur það markmið að hjálpa fólki að nálgast meðferð við geðrænum vanda. Herferð hennar "This Body of Mine" kannar reynslu flóttafólks með skapandi nálgun og hefur stutt listamenn með flóttamannabakgrunn um allan heim. Ally hefur kennt, skrifað og haldið fyrirlestra víða og trúir því að listin sé ekki skraut í skólastarfi heldur hreyfiafl fyrir réttlæti.
Um fyrirlesturinn
Hvernig getur listin farið úr því að vera skraut yfir í að vera tæki til breytinga? Ally Zlatar kynnir hagnýt og aðlögunarhæf verkfæri sem kennarar geta notað til að hjálpa nemendum að breyta upplifun sinni í skapandi baráttumál. Frá örherferðum innan kennslustofunnar til sjónræns frásagnarramma fara þátttakendur heim með skipulagðar æfingar sem efla sjálfstraust, samkennd og borgaralega þátttöku fyrir nemendur á öllum aldri.